Sorphirðudagatal 2015

Íslenska Gámafélagið hefur birt sorphirðudagatal fyrir Fjallabyggð árið 2015. Dagatalið má nálgast hér á heimasíðunni.  Eru íbúar hvattir til að kynna sér það vel. Á þessum tíma árs er mikilvægt að gætt sé að því að gott aðgengi sé að tunnunum svo auðveldlega gangi fyrir starfsmenn gámafélagsins að tæma þær.