Sorphirða úr skorðum þessa vikuna

Tilkynning frá Íslenska gámafélaginu og Fjallabyggð!

Vegna veðurs og snjóa hefur sorphirða farið úr skorðum þessa vikuna. Losun hefst um leið og veður gengur niður og hreinsun gatna er lokið.

Eru íbúar vinsamlegast beðnir um að moka frá ílátum sem eru flest á kafi og tryggja aðgengi að þeim.