Söng- og hæfileikakeppni

Þann 30. janúar verður söng- og hæfileikakeppni Grunnskóla Fjallabyggðar haldin í Tjarnarborg. Þar geta nemendur komið og sýnt hvað í þeim býr, hvort sem er að syngja einir eða í hóp eða að sýna hæfileika sína á annan hátt.
Þeir sem ætla að taka þátt eru beðnir um að skrá sig hjá umsjónakennara fyrir 16. janúar. Ekki er hægt að skrá sig til þátttöku eftir það.
ATH: Hver nemandi getur aðeins tekið þátt í einu atriði.

Grunnskóli Fjallabyggðar.