Sól er yfir Fjallabyggð

Fyrsti sólardagur var í Ólafsfirði mánudaginn 25. janúar  í dag fimmtudaginn 28. janúar er fyrsti sólardagur á Siglufirði. Sólin hverfur frá miðjum nóvember og sést ekki í rúma tvo mánuði vegna hárra fjalla er umlykja Siglufjörð og Ólafsfjörð. 

Heimamönnum finnst vert að halda upp á sólardaginn og gera það m.a. með því að gæða sér á "sólarpönnukökum".
Sjálfsbjörg á Siglufirði hefur undanfarin ár haft það sem fjáröflun að baka "sólarpönnukökur" og selja. Hefð er fyrir því að fyrirtækjaeigendur kaupi pönnukökurnar og bjóði starfsfólki sínu upp á þær með kaffinu. 

Að venju hittust nemendur í Grunnskóla Fjallabyggðar fyrir neðan Siglufjarðarkirkju og sungu nokkur lög til sólarinnar. 

Sól er yfir Siglufirði 
sumarheið og skær, 
blálygn sundin, bjartur spegill 
bliki á þau slær. 
Fjöllin eins og varnarvirki 
vaka nær og fjær. 
Fjöllin eins og varnarvirki 
vaka nær og fjær

Sól er yfir Ólafsfirði
öllum gleði ljær
Blálygnt vatnið, bjartur spegill 
bliki á það slær. 
Inn með firði fjöllin vaka 
fannhvít nær og fjær. 
Inn með firði fjöllin vaka 
fannhvít nær og fjær. 
(Texti Ingólfur frá Prestbakka)