Á aðalfundi Eyþings þann 15. nóvember sl. var samþykkt ný sóknaráætlun fyrir Norðurland eystra 2020-2024.
Sóknaráætlun er stefnuskjal sem felur í sér stöðumat landshlutans, framtíðarsýn og markmið í tilgreindum málaflokkum ásamt skilgreindum leiðum að markmiðunum. Til að vinna að markmiðum samningsins mun Eyþing:
- Móta sóknaráætlun Norðurlands eystra sem nær yfir árin 2020-2024.
- Annast umsýslu Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra sem styður við markmið sóknaráætlunar.
- Skilgreina áhersluverkefni sem endurspegla markmið sóknaráætlunar Norðurlands eystra og styðja við framgang hennar.
Áhersluflokkarnir í sóknaráætluninni eru atvinnumál og nýsköpun, menning og umhverfismál.
Áætlunin tekur mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og einstök markmið og aðgerðir tengd við tilheyrandi heimsmarkmið.
Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2020-2024 er að finna hér.
Við hvetjum íbúa Fjallabyggðar til að kynna sér sóknaráætlunina og þau markmið sem þar eru sett fram.