Snjóflóðahætta, veður og færð.

Mynd af vef
Mynd af vef

Undanfarna daga hefur bætt mikið á snjó og horfur á að svo verði áfram næstu daga.

Íbúum er því bent á að fara varlega og kynna sér aðstæður á hverjum stað og tíma.

Hér má sjá spá um snjóflóðahættu á utanverðum Tröllaskaga. Spáin er einkum ætluð ferðafólki sem hyggst sækja á fjalllendi, spáin tekur bæði til hættu á snjóflóðum af mannavöldum og vegna veðuraðstæðna á svæðinu.

Einnig eru íbúar, sem og aðrir, hvattir til að fylgjast vel með veðurspám og stöðu færðar á vegum.

Hér má nálgast yfirlit um viðvaranir vegna veðurs.

Hér má nálgast veðurspá fyrir Norðurland eystra.

Og hér má nálgast upplýsingar um færð á vegum.