Skólahreysti Grunnskóla Fjallabyggðar 2018

Hin árlega keppni í skólahreysti milli grunnskóla landsins er að fara af stað um þessar mundir. Í dag föstudaginn 2. febrúar fór fram tímtaka fyrir Landshlutakeppnina í íþróttahúsinu í Ólafsfirði. Þar öttu kappi nemendur í 8. 9. og 10. bekk Grunnskólans. Þau sem skipa æfingahóp Grunnskóla Fjallabyggðar og taka þátt í Landshlutakeppninni, sem haldin verður á Akureyri þann 4. apríl nk. kl.13:00, eru: Oddný, Júlía, Birna, Ronja, Helgi, Júlíus, Joachim og Alexander. Sigurvegarar í hverri grein fyrir sig fengu 3 mánaða kort í ræktina. 

Keppt var í hraðabraut auk þess sem keppt var í upphífingum, dýfum, armbeygjum og fitnessgreip.

Hér er hægt að skoða myndir frá tímatökunni í morgun.