Skóla- og frístundaakstur - stoppistöðvar – almenningssamgöngur á árinu 2012.

Á árinu 2012 má gera ráð fyrir töluverðum breytingum á almenningssamgöngum milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar sem og akstri  til Dalvíkur og Akureyrar þar sem sveitarfélögin í Eyþingi munu væntanlega taka við því verkefni af Vegagerð ríkisins um áramót.

Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 er gert ráð fyrir fjármagni til gatna- og gangstétta framkvæmda og er ætlunin að setja upp biðskýli  og  merkja stoppistöðvar sérstaklega. Áætlað er að stoppistöðvar verði þrjár í hvorum byggðarkjarna og er gert ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið í byrjun sumars.

Stefnt er að því að í júní verði búið að koma á reglubundnum ferðum á milli Siglufjarðar og Akureyrar með þremur ferðum á dag alla daga vikunnar nema á sunnudögum þá verður um að ræða eina ferð.

Fram að þeim tíma verða stoppistöðvar á eftirfarandi stöðum:

·       Farið verður frá Ólafsfirði frá Íþróttamiðstöðinni og stoppað við gatnamót Aðalgötu/Ægisbyggðar/Ólafsvegar.

·       Þegar komið verður til Ólafsfjarðar verður ekki stoppað við gatnamót Aðalgötu/Ægisbyggðar/Ólafsvegar, heldur farið beint á aðalstoppistöð, sem verður annað hvort við Menntaskólann á Tröllaskaga, Tjarnarborg eða íþróttamiðstöðina, samkvæmt akstursplani hverju sinni.

·       Þegar farið verður frá Siglufirði verður farið frá Grunnskólanum við Hlíðarveg eða Ráðhústorgi (fer eftir aksturplani) og stoppað verður við gatnamót Snorragötu/Norðurtúns.

·       Þegar komið verður til Siglufjarðar verður stoppað við gatnamót Norðurtúns/Hafnartúns, sé þess óskað. Svo á hefðbundnum stoppistöðum þ.e. við ráðhústorg, grunnskóla og íþróttamiðstöð, samkvæmt akstursplani hverju sinni.

 Sigurður Valur Ásbjarnarson
 Bæjarstjóri