Skíðafélag Ólafsfjarðar færði leikskólanum gönguskíði að gjöf

Stjórn Skíðafélags Ólafsfjarðar kom færandi hendi á Leikhóla í dag og færði leikskólanum fjögur pör af gönguskíðum og skóm sem henta eldri árgöngum leikskólans. Með þessari gjöf vill Skíðafélag Ólafsfjarðar kynna gönguskíðaíþróttina fyrir börnunum og gefa öllum færi á að prófa gönguskíði.  
Börnin tóku þessari gjöf fagnandi og skiptust á að fara á skíði í útiverunni. Nýja leikskólalóðin hentar mjög vel til gönguskíðaiðkunar þannig að það var líf og fjör hjá unga skíðafólkinu í dag. Þessi góða gjöf mun auka enn á fjölbreytni í vetrarstarfi og útivist leikskólabarnanna.

Börn og starfsfólk þakka Skíðafélagi Ólafsfjarðar kærlega fyrir.