Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti þann 14. september sl. deiliskipulag fyrir þjóðveg í þéttbýli Ólafsfjarðar. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 41.gr skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim, sem gerðu athugasemdir, verið send umsögn sveitarstjórnar. Deiliskipulagið er samþykkt með eftirtöldum breytingum:
- Bætt hefur við þremur gönguþverunum á uppdráttum og einhverjar færðar til.
- Uppgefnar hraðatakmarkanir voru teknar út af uppdráttum og texta breytt í greinargerð.
- Áningarstaður vestan Ólafsfjarðar með aðkomu frá Garðsvegi er nú sýndur á uppdráttum.
- Mögulegt rými fyrir strætóútskot milli Aðalgötu 44 og 46 var tekið út á uppdráttum.
- Merkingar þar sem göngu- og/eða hjólastígur fer yfir innkeyrslur að lóðum og þar sem bakkað er út á götu eru nú sýndar á uppdráttum ásamt merkingum þar sem ekki má leggja.
- Mögulegur fjöldi bílastæða meðfram þjóðvegi er nú sýndur á uppdráttum.
- Breytingar hafa verið gerðar á aðkomu/innkeyrslu við lóðirnar Múlavegur 13 og Múlavegur 18.
- Bætt hefur verið gatnamótum að Námuvegi til austurs.
- Frá Námuvegi að áningarstað austan Ólafsfjarðar liggur göngu- og hjólastígur nú austan megin þjóðvegar.
- Í kafla 3.2 Lóðir í greinargerð, hefur Múlavegi 6 verið bætt við í upptalningu á þeim lóðum sem þarf að aðlaga/breyta til að koma fyrir göngu- og hjólastígum meðfram götu.
Hægt er að kæra samþykkt bæjarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Deiliskipulagið er aðgengilegt á heimasíðu Fjallabyggðar, www.fjallabyggd.is.
Skipulagsfulltrúi