Samningur hefur verið gerður við Tröppu ráðgjöf ehf. um sérfræðiráðgjöf við Grunnskóla Fjallabyggðar. Megin áhersla ráðgjafarinnar er framkvæmd á skólastefnu sveitarfélagsins og endurgerð á skólanámaskrá, sýn og stefnu grunnskólans með það fyrir augum að í daglegu starfi skólans endurspeglist starf í anda nýrrar fræðslustefnu Fjallabyggðar, núgildandi aðalnámskrár og ríkjandi menntastefnu í landinu - menntun án aðgreiningar. Í samkomulagi Tröppu ráðgjafar og Fjallabyggðar verður unnið eftir sýn um framúrskarandi skóla þar sem gert er ráð fyrir að ná árangri umfram væntingar. Áhersla verður lögð á fjölbreytta kennsluhætti.
Síðastliðinn mánudag var haldinn kynningarfundur þar sem Kristrún Lind Birgisdóttir og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson ráðgjafar frá Tröppu ráðgjöf ehf. kynntu vinnuna framundan fyrir fræðslu- og frístundanefnd og fulltrúum foreldra og kennara í nefndinni, bæjarfulltrúum, stjórn foreldrafélags grunnskólans og skólaráði grunnskólans.
Síðastliðinn miðvikudag var svo sambærileg kynning haldin fyrir starfsfólk grunnskólans.
Vinna með starfsmönnum grunnskólans hefst í febrúar og í kjölfarið verður haldinn opinn kynningarfundur fyrir foreldra.