Sveitarfélagið Fjallabyggð skilaði 150,1 milljóna króna hagnaði á síðasta ári en fyrri umræða um ársreikninga fór
fram í bæjarstjórn í gær. Samþykkt var með öllum greiddum atkvæðum að vísa ársreikningum til síðari
umræðu.
Hagnaður sveitarfélagsins var talsvert umfram áætlanir á síðasta ári og jafnframt voru skuldir greiddar meira niður en
fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir. Með ársreikningunum er í senn staðfest sterk fjárhagsstaða Fjallabyggðar og
traustur rekstur en hagræðingaraðgerðum sem ráðist hefur verið í á síðustu misserum má að hluta þakka sú
jákvæða afkoma á árinu 2013 sem raun ber vitni.
Hraðari lækkun skulda
Eins og fram kemur í meðfylgjandi lykiltölum voru rekstrartekjur Fjallabyggðar rösklega 1.860 m. kr. og nemur hagnaður ársins því 8,1% af tekjum.
Afkoman var um 126 m.kr. betri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Jákvæð áhrif í rekstri
sveitarfélagsins birtast ennfremur í lækkun skulda en í heild greiddi bæjarsjóður niður skuldir um 161 m. kr. á árinu eða 65 m.kr.
umfram það sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Skuldahlutfall samstæðu sveitarsjóðs, þ.e. A og B-hluta, er 77,1% en viðmiðunarmörk eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga
eru 150%. Fjallabyggð er því í hópi þeirra sveitarfélaga sem best standa hvað skuldir varðar.
Skapar forsendur til framkvæmda
Sterkari staða Fjallabyggðar hefur skapað bæjarstjórn tækifæri til framkvæmda og annarra aðgerða í þágu
íbúa sveitarfélagsins. Á árinu 2013 réðist Fjallabyggð í framkvæmdir fyrir 104 milljónir króna en
fjárhagsáætlun ársins 2014 og þriggja ára áætlun gera ráð fyrir framkvæmdum fyrir um einn milljarð króna á
fjögurra ára tímabili. Stærsti einstaki framkvæmdaliðurinn er viðbygging grunnskólans á Siglufirði en á yfirstandandi ári
verður varið 175 milljónum króna til hennar. Langtímaáætlanir um framkvæmdir sveitarfélagsins gera ráð fyrir að í
þær verði ráðist án nýrrar lántöku.
Svigrúmið sem skapast hefur verður jafnframt nýtt til áframhaldandi niðurgreiðslu skulda. Langtímamarkmið bæjarstjórnar er að
halda áfram á sömu braut, með það meginmarkmið að rekstrarniðurstaða Fjallabyggðar sé jafnan jákvæð og að
framkvæmdir séu í takti við rekstrar-niðurstöðu.
Helstu lykiltölur úr ársreikningum Fjallabyggðar fyrir árið 2013:
· Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 1.860,8 m.kr.
· Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 150,1 m.kr., eða sem nemur 8,1%
af rekstrartekjum.
· Eigið fé í árslok nam 1.903,8 m.kr.
· Skuldir og skuldbindingar námu 1.756,9 m.kr. Þar af eru lífeyrisskuldbindingar 797 m.kr.
· Handbært fé í árslok var 206,1 m.kr.
· Veltufé frá rekstri nam 344,2 m.kr. eða 18,5% af rekstrartekjum.
· Skuldahlutfall Fjallabyggðar fyrir A-hluta er 68.4 %
· Skuldahlutfall samstæðunnar er 77,1%
· Veltufjárhlutfall samstæðunnar er 2,29
· Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 62,4%.
Nánari upplýsingar:
Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri
sími 894 5622