Olga Vocal Ensemble ætlar að syngja jólin inn í ár. Þetta verður í fyrsta skipti sem Olga heldur tónleika á Íslandi yfir jólahátíðina og hún getur ekki beðið að deila þeirri upplifun með ykkur. Olga mun flytja jólalög úr öllum áttum. Efnisskráin verður skemmtilega fjölbreytt og hentar fólki á öllum aldri. Tónleikar verða í Menningarhúsinu Tjarnarborg laugardaginn 19. desember kl. 20:00. Miðasala á tix.is Tryggið ykkur miða í tíma.
Söngvarar:
Bjarni Guðmundsson - 1. tenór
Jonathan Ploeg - 2. tenór
Gulian van Nierop - Baritón
Pétur Oddbergur Heimisson - 1. bassi
Philip Barkhudarov - 2. bassi
Netsala:
2.500 almennt verð
1.500 fyrir nema, öryrkja og eldri borgara
Miðasala við hurðina:
3.000 almennt verð
2.000 fyrir nema, öryrkja og eldri borgara
Frítt fyrir 16 ára og yngri.
Allar Olgur fá frítt inn!
Olga og Ketill hlakka til að komast í jólaskapið með þér!