Rafrænar viðvaranir til lánþega. Aukin opnun á Siglufirði.

Í byrjun árs hóf bókasafnið að senda út rafrænar viðvaranir til lánþega ef skiladagur á safnefni var að nálgast. Þetta hefur gengið vonum framar og vonandi líkar notendum bókasafnsins þessi þjónusta. 
Til að skilaboðin komist til skila verður netfang að vera skilgreint hjá lánþegum í kerfinu.
Hægt er að gefa upp / breyta netfangi við innskráningu á www.leitir.is Nánari upplýsingar og aðstoð um skráningu er hægt að fá á bókasafninu.

Frá og með 13. janúar síðastliðnum er bókasafnið á Siglufirði opið á mánudögum.

Opnunartími safnanna eru:

Afgreiðslutímar á Siglufirði:
Virkir dagar frá klukkan 13:30 - 17:00

Afgreiðslutímar í Ólafsfirði:
Virkir dagar frá klukkan 14:00 - 17:00

Ávallt er hægt að skila á bókasafnið í Ólafsfirði í gegnum bréfalúguna.