Á stofnfundi nýs byggðarsamlags sem haldin var 29.janúar sl. á Sauðárkróki, undirrituðu fulltrúar níu sveitarfélaga
samþykktir nýs byggðarsamlags sem fengið hefur nafnið Rætur bs.
Tilgangur samlagsins er að fara með málefni fatlaðs fólks á vestanverðu Norðurlandi. Aðildarsveitarfélög byggðasamlagsins eru;
Akrahreppur, Blönduósbær, Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Skagabyggð, Sveitarfélagið
Skagafjörður og Sveitarfélagið Skagaströnd.
Verkefni byggðasamlagsins var áður rekið af Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra eða allt frá árinu 1999. Stofnun nýs
byggðasamlags mun ekki hafa áhrif á framkvæmd þjónustu við fatlað fólk á starfssvæðinu en mun skerpa enn frekar á
ábyrgð og samstarfi sveitarfélagana við veitingu þjónustu við fatlað fólk.
Í stjórn byggðasamlagsins sitja; Ágúst Þór Bragason Blönduósbæ, Ásta Björg Pálmadóttir Sveitarfélaginu
Skagafirði, Ingvar Erlingsson Fjallabyggð, Skúli Þórðarson Húnaþingi vestra og Svanfríður Inga Jónasdóttir
Dalvíkurbyggð.