Ráðstefna Evrópsku Kítínsamtakanna, EUCHIS, á Siglufirði 11. – 14. september 2023

Ráðstefna Evrópsku Kítínsamtakanna, EUCHIS, á Siglufirði 11. – 14. september 2023.

Nú styttist í ráðstefnu Evrópsku Kítinsamtakanna, EUCHIS 2023, á Siglufirði 11.-14. september 2023. Samtökin eru leiðandi á heimsvísu í kítíniðnaðnum og munu rúmlega hundrað vísindamenn og fólk úr nýsköpunargeiranum vítt og breitt um heiminn sækja ráðstefnuna. Það er ánægjulegt að samtökin hafi valið Siglufjörð sem ráðstefnustað en hingað til hefur hún farið fram í stórborgum í Evrópu og til stóð að hún yrði haldin í Moskvu í ár.

Evrópsku Kítínsamtökin (EUCHIS, www.euchis.org) standa fyrir ráðstefnu þessari annað hvert ár, en þau hafa það að meginmarkmiði að hvetja til hvers kyns rannsókna á kítíni og kítósani, bæði grunnrannsókna og hagnýtra. Kítín og afleiða þess, kítósan, eru á Siglufirði unnin úr rækjuskel sem fellur til sem úrgangur frá rækjuvinnslu og væri ella fargað. 

Kítósan er lífvirkt náttúrulegt efni sem leysa mun mörg kemísk efni af hólmi, og hafa yfirgripsmiklar rannsóknir átt sér stað um allan heim á þessar fjölþættu fjölliðu. Kítósan brotnar auðveldlega niður í náttúrunni og hefur reynst hafa margvíslega og margbreytilega nýtingarmöguleika, m.a. innan læknisfræði, efnafræði, landbúnaðar, í sáravörum, snyrtivörum og fæðubótarefnum, sem og í hreinsun vatns. Sjálfbær framleiðsla og þróun á nýtingarmöguleikum efnisins styður við Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna m.a. vegna jákvæðra umhverfisáhrifa. 

Á ráðstefnunni á Siglufirði í september koma saman allir helstu sérfræðingar heims á sviði kítín- og kítósanrannsókna og þar munu því gefast tækifæri fyrir íslenska rannsakendur og háskólanema að styrkja tengsl sín við alþjóðlega rannsakendur á þessu sviði. Háskóli Íslands hefur staðið fyrir öflugum rannsóknum á þessu sviði í samvinnu við fjölmargar rannsóknarstofnanir og fyrirtæki og tekur virkan þátt í öllum undirbúningi ráðstefnunnar.

Dagskrá ráðstefnunnar og slóð heimasíðu