Í ljósi hertra sóttvarnarreglna og reglna um 10 manna hámarksfjölda í sama rými, sem tóku gildi á miðnætti 25. mars verður afgreiðsla bæjarskrifstofu lokuð fyrir utanaðkomandi heimsóknir til og með 15. apríl nk. en öll starfsemi er óskert.
Aukin áhersla á samskipti og þjónustu í gegnum síma og með tölvupósti
Skiptiborð bæjarskrifstofu er opið samkvæmt auglýstum opnunartíma og eru íbúar og aðrir viðskiptavinir sem eiga erindi við skrifstofuna hvattir til að hafa samband í síma 464-9100, senda tölvupóst á fjallabyggd@fjallabyggd.is eða beint á netföng starfsmanna. Athugið að hægt er að bóka viðtalstíma hjá starfsmönnum ef erindið er brýnt og nauðsyn krefst.
Áfram verður lögð áhersla á að tryggja sem besta þjónustu meðan þetta ástand varir.
Ítarlegar upplýsingar um starfsemi og starfsmenn sveitarfélagsins er að finna á www.fallabyggð.is.
Umsóknir og gögn má einnig nálgast á RAFRÆN FJALLABYGGÐ (Opnast í nýjum vafraglugga).
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Frekari upplýsingar um þróun faraldursins og bólusetningar má finna á www.covid.is. Þar má einnig finna upplýsingar um þær sóttvarnaaðgerðir sem eru í gildi sem og leiðbeiningar.
Að lokum eru íbúar hvattir til að gæta vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum og fylgja gildandi sóttvarnarráðstöfunum í hvívetna.
Við erum öll almannavarnir!