Flottur hópur
Nú í desember hefur Grunnskóli Fjallabyggðar verið í samstarfi við Önnu Hermínu Gunnarsdóttur með innpökkun á jólagjöfum sem hún hefur safnað til að gefa bágstöddum börnum á Íslandi. Það hefur hún gert í rúmlega 10 ár og í fyrra leitaði hún eftir samstarfi við skólann þar sem gjafafjöldinn var kominn yfir 50 pakka. Í ár hefur svo pakkafjöldinn tvöfaldast, er kominn yfir 100.
Nemendur í 1.- 7. bekk voru virkjaðir til þátttöku, gerðu merkispjöld og gjafapappír og tóku síðan að sér að pakka gjöfunum inn. Í gær, miðvikudag, kom Anna Hermína í skólahúsið við Tjarnarstíg með gjafirnar og nemendur pökkuðu þeim inn og merktu. Pakkarnir fara síðan til Mæðrastyrksnefndar sem sér um að koma þeim á rétta staði. Verkefnið var sérlega skemmtilegt og gefandi og ánægjulegt fyrir nemendur að fá að taka þátt í því.
Anna Hermína (t.h.) ásamt nemenda í 6.b. grunnskólans að pakka inn gjöf.
Fleiri myndir er hægt að sjá á heimasíðu grunnskólans