Orkusjóður auglýsir styrki til orkuskipta fyrir árið 2022

Mynd: Fíb
Mynd: Fíb

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að auglýstir verðir styrkir til orkuskipta að upphæð 900 milljónir kr. af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslagsmála í ár. Um er að ræða eina hæstu upphæð sem sjóðurinn hefur úthlutað um árabil.

Styrkflokkar eru í samræmi við stefnu ríkisstjórnar Íslands um að styðja við orkuskipti á landsvísu með áherslu á að horfa til orkutengdra verkefna og grænnar orkuframleiðslu, sem og að styðja við orkuskipti í samgöngum um land allt, þ.m.t. í þungaflutningum, ferjum og höfnum og net hleðslustöðva í dreifðum byggðum og í ferðaþjónustu.

Styrkir til verkefna:

  • Bætt orkunýting: Búnaður sem minnkar raforkunotkun til beinnar upphitunar í rafkyntum varmaveitum og/eða dregur úr olíunotkun.
  • Minnkun olíunotkunar í iðnaði: Búnaður sem nýtir vistvæna orku í stað olíu.
  • Raf- og lífeldsneyti og metan: Bætir innviði og eða framleiðsla raf- eða lífeldsneytis úr orku sem tryggð hefur verið til þess verkefnis. Nýting líf- og rafeldsneytis og metans skal einnig vera tryggð, hvort heldur sem orkugjafi eða til frekari framleiðslu.
  • Hleðslustöðvar fyrir framleiðslu: Uppsetning hleðslu- eða áfyllingarstöðva til þéttingar nets hleðslustöðva við vegakerfið sem og gististaði, frístundavæði, verslanir og fjölsótta ferðamannastaði.
  • Orkuskipti í haftengdri starfsemi: Aðgerðir sem nýta vistvæna orku í haftengdri starfsemi og í siglingu til og frá höfn.

Umsóknarfrestur er til 7. maí 2022

Orkusjóði hefur verið falin umsjón með auglýsingu og umsýslu styrkjanna. Umsóknir skulu sendar gegnum þjónustugátt Orkustofnunar: gattin.os.is.

Nánari upplýsingar: www.orkusjodur.is