Opinn fundur Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi.

Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi verður með opin fund, fimmtudaginn 8. maí kl 15:00. í bæjarstjórnarsalnum í Ráðhúsinu á Siglufirði. Fundurinn er opin öllum sem hafa atvinnu af ferðmennsku eða hafa bara almennan áhuga á ferðmálum í Fjallabyggð. Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta á Siglufirði geta fylgst með fundinum í fjarfundarbúnaðinum á bæjarskrifstofunum í Ólafsfirði.
Á fundinn mæta starfsmenn Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi og kynna starfsemi og helstu verkefni sem MFN vinnur að. Einnig er þetta gott tækifæri fyrir fólk innan geirans til að kynnast og efla samvinnu.