Opinn íbúafundur á TEAMS í dag kl. 17:00 um samgöngur og snjóflóðavarnir

Þann 1. febrúar 2021 kl. 17:00 stendur Fjallabyggð fyrir opnum íbúafundi um samgöngur og snjóflóðavarnir í kjölfar atburða undanfarinna daga og viðbrögð við þeim. Á fundinn mæta fulltrúar Veðurstofu Íslands, Vegagerðarinnar og Almannavarna.

Íbúar eru hvattir til að senda  spurningar í netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is fyrir fundinn. Öllum spurningum verður svarað.

Fundinum verður streymt beint á Teams og er hann opinn öllum.

Umræðuefni fundarins eru:

  • Opnun fundar;  Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar
  • Snjófljóðahættumat og -varnir;  Tómas Jóhannesson, Veðurstofa Íslands
    • Hættan neðan snjóflóðavarnargarða, rýmingaráætlun fyrir svæðið undir Strengsgili á Siglufirði
  • Forsendur rýmingar;  Harpa Grímsdóttir, Veðurstofa Íslands
    • "Nýafstaðin snjóflóðahrina á Norðurlandi, rýming á Siglufirði"
  • Vetrarþjónusta og vegakerfið; Heimir Gunnarsson,  Vegagerðin
  • Aðkoma almannavarna; Kristján Kristjánsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra

Fundarstjóri verður Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar.

Slóð á upptöku af fundinum

 Auglýsing á pdf