Mynd: Eyþing
Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2020.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála.
Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2020.
Opnað verður fyrir umsóknir kl. 12:00, mánudaginn 7. október. Umsóknarfrestur er til og með kl. 12:00, fimmtudaginn 7. nóvember. Sótt er um á rafrænni umsóknargátt sem er á heimasíðu Eyþings: www.eything.is, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga: www.atthing.is og Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar: www.afe.is.
Starfsmenn Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna verða með viðveru á starfssvæðinu þar sem veitt verður ráðgjöf við gerð umsókna.
Viðvera starfsmanna uppbyggingarsjóðs verður á eftirfarandi stöðum:
Viðtalstímar:
Mánudagur 14. október
- kl. 13:00-14:00 Bókasafni Fjallabyggðar Ólafsfirði, Ólafsfjörður
- kl. 14:30-15:00 Ráðhúsinu Siglufirði, Siglufjörður
- Fyrir utan ofangreindar dagsetningar bjóða ráðgjafar upp á viðtalstíma á starfsstöðvum sínum eftir samkomulagi.
Frekari upplýsingar veita:
Ari Páll Pálsson netfang aripall@atthing.issími 464 0416
Baldvin Valdemarsson á netfang baldvin@afe.is sími 460 5701
Vigdís Rún Jónsdóttir netfang vigdis@eything.is sími 464-9935
Auglýsing á pdf til útprentunar
Tilkynningin er aðsend.