Ný íbúð á jarðhæð í Skálarhlíð

Bæjarráð samþykkti á 587 fundi sínum að taka tilboði L7 ehf vegna breytinga á jarðhæð í Skálarhlíð. Til stendur að útbúa 50 fermetra íbúð á jarðhæðinni í rými sem áður hélt aðstöðu fyrir hárgreiðslu og fleira. Aðstaðan hefur verið illa nýtt síðustu ár og því var ákveðið að útbúa stóra íbúð en ásókn í íbúðir af þessari stærðargráðu hefur aukist nú síðustu ár í Skálarhlíð. Áætlað er að verkinu verði lokið eigi síðar en 1. apríl 2019.