Munið endurskinsmerkin

Mynd: af veraldarvefnum
Mynd: af veraldarvefnum

Nú þegar það er farið að dimma er MJÖG mikilvægt að börn og reyndar allir sem eru á ferðinni noti endurskinsmerki eða endurskinsvesti á ferð sinni í umferðinni.
Í myrkri sjást gangandi og hjólandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu. Útsýni ökumanna er allt annað en þeirra sem eru gangandi eða hjólandi. Gangandi eða hjólandi vegfarendur ættu því ætíð að nota viðeigandi öryggisbúnað s.s. endurskin, ljósabúnað og hjálm.

Skólayfirvöld í Fjallabyggð vilja koma því á framfæri til foreldra og forráðamann að yfirfara hjólabúnað og yfirhafnir barnanna og ganga úr skugga um það að endurskinsmerki séu á yfirhöfnum og glitaugu og ljós á reiðhjólum

Verum vel upplýst og örugg í umferðinni!