Met gestafjöldi á bókasafnið

Frá bókasafni Fjallabyggðar
Frá bókasafni Fjallabyggðar

Á fundi markaðs- og menningarnefndar á mánudaginn lagði Hrönn Hafþórsdóttir forstöðukona bóka- og héraðsskjalasafns Fjallabyggðar fram ársskýrslu fyrir árið 2015.
Í ársskýrslunni kemur m.a. fram að gestakomur á bókasafnið fóru nú í fyrsta skipti yfir 10.000 manns og jókst heildargestafjöldi frá árinu 2014 um 33%. Lánþegakomur voru 8.875 manns og aðrar heimsóknir voru 2.242.
Útlán úr Gegni voru 10.384 en voru 9.181 á árinu 2014. Útlánaaukning er því 13.1% á milli ára.

Fyrir áhugasama þá má lesa ársskýrsluna með því að smella hér.