Mannamót 2014

Markaðsstofa Norðurlands
Markaðsstofa Norðurlands
Markaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót fyrir samstarfsfyrirtæki sín í Reykjavík 23. janúar kl. 13:00 – 17:00 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli.
Mannmót markaðsstofanna er hugsað sem kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru í Reykjavík. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl frá höfuðborginni fyrir á landsbyggðina. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá með áherslu á vetrarferðamennsku.

Á Mannamót er meðal annars boðið:
- Ferðaskrifstofufólki 
- Starfsfólki upplýsinga- og bókunarmiðstöðva 
- Leiðsögumönnum 
- Nemendum í leiðsöguskólanum og ferðamálafræðum 
- Starfsfólki í þjónustuverum flugfélaga 
- Sölu- og kynningarfólki flugfélaga 
- Ferðaskipuleggjendum 
- Starfsfólki í mótttökum hótela og gistihúsa 
- Opinberum stofnunum: Íslandsstofa, Ferðamálastofa, Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti, Innanríkisráðuneytið, Samgöngustofu, Isavia, kennurum í ferðamálagreinum ofl.

Samstarfsfyrirtæki Markaðsstofunnar sem vilja taka þátt skrái sig á info@nordurland.is eða í gegnum heimasíðuna www.naturaliceland.is ekki seinna en föstudaginn 17. janúar. Verð fyrir sýnendur er 10.000,- kr. á fyrirtæki. Fyrirkomulag Mannamóta er hefðbundið vinnsýningarskipulag en ekki eru fundabókanir. Hvert fyrirtæki verður staðsett á sama stað og önnur fyrirtæki úr sama landshluta og geta haft með sér standa, bæklinga og annað kynningarefni. Á Mannamótum bjóða markaðsstofur landshlutana og þátttökufyrirtæki upp á léttar veitingar og smakk úr heimabyggð.

Frétt af heimasíðu Markaðsstofu Norðurlands www.nordurland.is