Málþing um matartengda ferðaþjónustu

Í tengslum við Local Food sýninguna sem haldin verður í Íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 17. október nk. verður haldið málþing á Dalvík um matartengda ferðaþjónustu. Fyrir málþinginu stendur 20 manna hópur frá Bretlandi sem er kominn í heimsókn til landsins til að kynnast norðlenskri matarferðaþjónustu. Málþingið verður haldið í Bergi á Dalvík, mánudaginn 19. október. Eru allir þeir sem áhuga hafa á matartengdri ferðaþjónustu hvattir til að fjölmenna á málþingið. Nánari upplýsingar á heimasíðu Markaðsstofu Norðurlands.  Dagskrá og skráning hér.

Nánari upplýsingar um Local Food sýninguna má nálgast á heimasíðunni www.localfood.is

Merki Local food hátíðarinnar