Lýðheilsugöngur með Ferðafélagi Íslands í Fjallabyggð

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands (FÍ) verða vítt og breitt um landið nú í september og ætlar Fjallabyggð að vera með í ár eins og í fyrra.

Göngurnar munu fara fram alla miðvikudaga í septembermánuði og verður brottfaratími frá kl. 17:00-18:00 eftir færð, veðri og gönguleið. Um er að ræða fjölskylduvænar göngur sem taka  u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

Allar upplýsingar um göngustaði vítt og breitt um landið má nálgast á heimasíðu FÍ.

Gönguferðir í Fjallabyggð verða birtar á heimasíðu Fjallabyggðar - viðburðadagatal.

Fyrsta gangan verður þann 5. september með Ferðafélagi Ólafsfjarðar og gengið verður í Siglufjarðarskarð. Farastjóri Harpa Hlín Jónsdóttir.

Lagt af stað frá Vallarhúsi Knattspyrnufélags Fjallabyggðar (KF) í Ólafsfirði kl. 17:30. Keyrt verður að Hraunum í Fljótum. Gengin verður gamla póstleiðin upp í Siglufjarðarskarð og niður Skarðsdalinn. Gangan er um 11-13 km að lengd og gæti tekið um 4 klst. Ekið verður með rútu frá Ólafsfirði, verð 800 kr. pr. mann. Ganga á allra færi.

Vonandi reima sem flestir á sig gönguskóna með okkur á miðvikudögum í september, fara út í náttúruna og njóta fallega landsins okkar.

LIFUM OG NJÓTUM!