Lokanir á leikskólunum vegna starfsmannafunda.

Vegna starfsmannafunda verða leikskólarnir lokaðir sem hér segir: Á Leikhólum í Ólafsfirði verður lokað til kl. 12:00 föstudaginn 10. janúar. Á Leikskálum á Siglufirði verður lokað mánudaginn 13. janúar til kl. 12:00.
Á báðum stöðum verður boðið upp á hádegisverð kl 12:00 Eru foreldrar beðnir að láta vita ef barnið kemur ekki í hádegisverð.