Ljósmyndasýning í Saga-Fotografia á Siglufirði - opnun 17. júní

Þann 17. júní verður opnuð sýning með ljósmyndum Björns Valdimarssonar í Saga-Fotografia ljósmyndasögusafninu á Siglufirði.

Sýndar verða myndir úr þrem seríum sem Björn hefur unnið að síðustu árin. FÓLKIÐ Á SIGLÓ, sem byggir á myndum af fólki sem tengist Siglufirði. LÍFIÐ Á SAUÐANESI er með myndum frá bænum Sauðanesi við Siglufjörð. Auk hefðbundinna bústarfa eru hjónin þar meðal annars með vitaeftirlit, veðurathuganir og hestaleigu. Þriðja myndaröðin nefnist MINNISVARÐAR og er hún með myndum af eyðibýlum, öðrum mannvirkjum og gömlum farartækjum í landslaginu á Norðulandi sem flest eiga það sameiginlegt að vera að eyðast og smám saman að verða hluti af náttúrunni.

Sýningin verður opin á opnunartíma safnsins kl. 13:00 til 16:00 nú í sumar. Hægt er að semja um aðra skoðunartíma fyrir hópa.