Listamannaspjall - Sagan um fyrstu vísindaskáldsöguna

Verk eftir Bettina Forget
Verk eftir Bettina Forget
Listhúsið í Ólafsfirði stendur fyrir viðburði föstudaginn 13. júní kl. 20:00. Þá mun listamaðurinn Bettina Forget vera með listamannaspjall undir yfirskriftinni
"Hver skrifaði fyrstu vísindaskáldsöguna?" Samkvæmt henni var það Þjóðverjinn Johannes Kepler sem skrifaði bókin "Somnium" fyrir um 400 árum. Í bókinni er lýst ævintýralegri ferð til tunglsins, íbúum þess og landslagi auk þess hreyfingum sólkerfisins. Það sem fæstir vita er að aðalsöguhetjurnar í bókinni eru Íslendingar og stór hluti sögunnar gerist á Íslandi.  Bettina, sem mun dvelja í Listhúinu í þessum mánuði, hefur gert teikningar byggðar á bókinni Somnium. 
Bettina er fædd í Þýskalandi en býr í Montreal, Kanada þar sem hún rekur sitt eigið listagallerí.