Fjallabyggð býður uppá Lista- og menningargöngu um Siglufjörð fimmtudaginn 6. desember nk. frá kl. 18:00 til ca. 20:00 um Ólafsfjörð 7. desember nk. frá kl. 18:30 til ca. 19:30.
Lista- og menningarganga um Siglufjörð fimmtudaginn 6. desember nk. frá kl. 18:00 til ca. 20:00.
Gangan hefst á Ráðhústorginu kl. 18:00.
Vakin er athygli á að kl. 17:00 mun starfsfólk Síldarminjasafnsins kynna nýútgefna bók safnsins, Siglufjörður. Ljósmyndir/Photographs 1872-2018 í Gránu. Því er tilvalið fyrir áhugasama að byrja í Gránu og sameinast svo listagöngunni kl. 18:00 á Ráðhústorginu. Hér má sjá auglýsingu um útgáfuhófið í Gránu.
Kíkt verður í heimsókn til eftirtalinna aðila og gert ráð fyrir að hver heimsókn taki um 10 mínútur.
18:00-18:10 Ljóðasetur – Opið hús
18:15-18:25 Alþýðuhúsið - Kompan, Sýningaropnun jólasýning Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur
18:30-18:40 Fríða - Súkkulaðikaffihús – Opið hús
18:50-19:00 Gallerí Imba – Fossvegi 33
19:10-19:20 Ljósmyndasögusafnið
19:25-19:35 Iðjan Dagvist – Opið hús
19:40-19:50 Vinnustofa Abbýjar – Jólamarkaður opið hús
19:55-20:05 Söluturninn í Ytrahúsi: Listsýning Arnars Herbertssonar
20:05-20:15 Sjálfsbjörg Siglufirði - Opið hús
Kl. 19:00-22:00 Jólakvöld á Siglufirði – lengri opnunartími verslana víðs vegar um bæinn. Hér má sjá auglýsingu um Jólakvöld á Siglufirði.
Linda Lea Bogadóttir, markaðs- og menningarfulltrúi mun leiða gönguna. Allir hjartanlega velkomnir.
Lista- og menningarganga um Ólafsfjörð föstudaginn 7. desember nk. frá kl. 18:30 til ca. 19:30.
Gangan hefst við jólatréð við Tjarnarborg
Kíkt verður í heimsókn til eftirtalinna aðila.
Kl. 18:30 Listhús Artspace - Sýningaropnun Flóðljós
Kl 19:00 Pálshús náttúrugripasafn - Jólasveinasafn Egils Sigvaldasonar
Kl: 19:15 Kaffi Klara - Sýningin Land of Vertigo
Kl. 19:30 Jólabærinn Ólafsfjörður, hið árlega jólakvöld í miðbæ Ólafsfjarðar
Sjá auglýsingu um Jólabæinn hér og á Facebook síðu viðburðarins
Bjarney Lea Guðmundsdóttir mun leiða gönguna. Allir hjartanlega velkomnir.
Birt með fyrirvara um breytingar.