Lífshlaupið 2021 hefst 3. febrúar

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands minnir á að Lífshlaupið heilsu- og hvatningarverkefni verður ræst í 14. sinn miðvikudaginn 3. febrúar 2021.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

  • vinnustaðakeppni frá 3. febrúar – 23. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • framhaldsskólakeppni frá 3. febrúar – 16. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
  • grunnskólakeppni frá 3. febrúar – 16. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Eins og ávallt hvetjum við alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum/í skólanum.

Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en fínar leiðbeiningar má finn hér og undir viðeigandi keppni vinstra megin.

Gaman er að geta fylgst með sinni hreyfingu og jafnframt tekið þátt í þessari skemmtilegu landskeppni. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu. Börnum 15 ára og yngri er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og 16 ára og eldri a.m.k. 30 mínútur á dag. Einnig er einfalt að ná í hreyfinguna sína úr Strava.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ á hronn@isi.is, eða Kristín Birna Ólafsdóttir verkefnastóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ. Einnig er hægt að hringja á vinnutíma í síma 514-4000.

Heilsueflandi Fjallabyggð hvetur einstaklinga, skóla og vinnustaði til að taka þátt.