Lífshlaupið

Lífshlaupið verður ræst í sjötta sinn miðvikudaginn 6. febrúar n.k. Um 20.900 manns tóku þátt í Lífshlaupinu á síðasta ári og fjölgaði þátttakendum um 4500 á milli ára. Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og er hægt að skrá þátttöku á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is en þar gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í:


  • vinnustaðakeppni frá 6. – 26. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • hvatningarleik fyrir grunnskóla frá 6. – 19. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

 

Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni hreyfingu í frítíma, heimilisstöfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embætti landlæknis um hreyfingu. Börn og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og fullorðnir a.m.k. 30 mínútur á dag.

 

Vinnustaðir/skólar er sá vettvangur þar sem hagsmunir vinnustaða og íþróttahreyfingarinnar liggja saman við uppbyggingu almennings- og fyrirtækjaíþrótta, forvörnum og velferð samfélagsins til framtíðar. Við óskum eftir liðsinni ykkar við að hvetja vinnustaði, grunnskóla og einstaklinga í ykkar sveitarfélagi til þátttöku. Nota tækifærið til að skapa létta stemningu og efla í leið líkama, sál og félagsandann með því að hreyfa sig daglega. Við hvetjum ykkur til þess að segja frá Lífshlaupinu á ykkar heimasíðu. Hægt er að fá hnapp hjá ÍSÍ til að setja inn á heimasíðuna sem leiðir áhugasama inn á heimasíðu verkefnisins.

 

Skráning hefst miðvikudaginn 16. Janúar.

 

Samstarfsaðilar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslandsvegna Lífshlaupsins eru: mennta- og menningarmálaráðuneytið, velferðarráðuneytið, embætti landlæknis, Advania, Rás 2 og Ávaxtabíllinn.

 

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, jona@isi.is í síma: 514-4000.

                                              

Virðingarfyllst,

ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS