Leysingar Alþýðuhúsinu á Siglufirði um páskana 2022

Föstudaginn langa 15. apríl kl. 14.00 hefst árlega listahátíðin Leysingar í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Hátíðin stendur í þrjá daga og er boðið upp á sýningu í Kompunni, þrjá gjörninga, upplestur og tvenna tónleika.
 
 
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og eru gestir beðnir um að sinna sóttvörnum. Tekið verður við frjálsum framlögum á viðburði við innganginn í formi peninga eða með því að millifæra með síma.
 
Húsið opnar 15. mín fyrir viðburði.
 
Nánari upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 8655091.
SSNE, Fjallabyggð, Norðurorka, KEA, Aðalbakarí og Rammi hf. styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
 
Leysingar 15. - 17. apríl
Þátttakendur eru:
Kristín Ómarsdóttir
Davíð Þór Jónsson
Silfrún Una Guðlaugsdóttir
Tara Njála Ingvarsdóttir
Sindri Leifsson
Óskar Guðjónsson
Skúli Sverrisson
Samúel Rademaker
Þórir Hermann Óskarsson
Halldór Ásgeirsson

Föstudagur 15. apríl
kl. 14.00 - Kompan, Sindri Leifsson
kl. 15.00 - Gjörningur, Silfrún Una Guðlaugsdóttir, Tara Njála Ingvarsdóttir
kl. 15.45 - Gjörningur, Samúel Rademaker, Þórir Hermann Óskarsson
kl. 16.20 - Gjörningur, Halldór Ásgeirsson, Þórir Hermann Óskarsson


Laugardagur 16. apríl
kl. 14.00 - 17.00 - Kompan, Sindri Leifsson
kl. 21.00 - Tónleikar, Óskar Guðjónsson, Skúli Sverrisson
 
Sunnudagur 17. apríl
kl. 14.00 - Kompan, Sindri Leifsson
kl. 16.00 - Ljóðalestur, Kristín Ómarsdóttir
kl. 16.45 - Tónleikar, Davíð Þór Jónsson