Lausar lóðir sýnilegar á Kortavef Fjallabyggðar

Á kortavef Fjallabyggðar er nú hægt að sjá þær lóðir sem lausar eru til umsóknar. Á kortavefnum er einnig hægt að fá upplýsingar um stærð lóða og hámarks byggingarmagn samkvæmt deiliskipulagi. Umsóknir lóða fara í gegnum Rafræn Fjallabyggð - íbúagátt þar sem umsækjandi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli.  Tæknideild Fjallabyggðar veitir einnig frekari upplýsingar um lausar lóðir, í Fjallabyggð,  í síma 464-9111 eða með tölvupósti á fjallabyggd@fjallabyggd.is.