Landsskipulagsstefna og skipulagsgerð sveitarfélaga

Merki Skipulagsstofnunar
Merki Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun kynnir auglýsta tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 á opnum fundi á Hótel Kea þann 21. janúar kl. 15:00 - 17:00.  Á fundinum verður tillagan kynnt auk þess sem að fjallað verður sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitarfélaga svo sem við endurskoðun aðalskipulags. Jafnframt verður bein útsending frá kynningu í Reykjavík þann 29. janúar kl. 15:00 - 17:00 og má sjá hana á heimasíðu Skipulagsstofnunar.

Tillöguna, ásamt umhverfismati og fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir, má nálgast á www.landsskipulag.is og www.skipulagsstofnun.is, en frestur til að skila athugasemdum er til 13. febrúar 2015.