Kynningarfundur á vegum Rannís

Á mánudaginn, þann 11. janúar kl. 16:00, verður haldin kynningarfundur á vegum RANNÍS um tækifæri og styrki í Erasumus+ og Creative Europe. Fundurinn verður í Ráðhúsi Fjallabyggðar Gránugötu 24.
Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda og nýsköpunar, menntunar og menningar, æskulýðsstarfs og íþrótta.

Dagskrá:
· Erasmus+ menntun  og tveir meginflokkar umsókna 
Nám og þjálfun - umsóknarfrestur 2. febrúar 2016
Samstarfsverkefni - umsóknarfrestur 31. mars 2016
Margrét Sverrisdóttir og Margrét Jóhannsdóttir sérfræðingar hjá Rannís.
 
· Menningaráætlun ESB - Creative Europe
Ragnhildur Zoëga sérfræðingur hjá Rannís
Ráðgjöf verður í boði fyrir áhugasama að loknum kynningum.

Erasmus+ mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlun ESB veitir skólum, stofnunum, félagasamtökum, sveitarfélögum og fyrirtækjum einstakt tækifæri til að taka þátt í fjölþjóðlegu samstarfi. Erasmus+ styrkir verkefni á öllum stigum menntunar og verkefni á sviði æskulýðsstarfs og íþrótta.
Creative Europe menningaráætlun ESB styrkir menningarstofnanir hvers konar, bókaútgefendur, menningarmiðstöðvar, listasöfn, leikhús, myndlist o.fl. Áætlunin styður við allar tegundir listgreina.
Hvar: Ráðhúsinu, Gránugötu 24, Siglufirði  
Hvenær: 11. janúar 2016, kl. 16:00-17:30

Allar nánari upplýsingar á www.rannis.is

Skráning