Kynningarfundir verða haldnir 9. og 10. janúar 2013.
Í 21. gr. skipulagslaga nr.123/2010 er fjallað um svæðisskipulag en “svæðisskipulag er skipulagsáætlun tveggja
eða fleiri sveitarfélaga þar sem sett er fram sameiginleg stefna þeirra um byggðaþróun og þá þætti landnotkunar sem þörf er
talin á að samræma vegna sameiginlegra hagsmuna hlutaðeigandi sveitarfélaga”. Enn fremur segir svo í 2. mgr. sömu greinar:
“Svæðisskipulag skal taka til svæðis sem myndar heild í landfræðilegu, hagrænu og félagslegu tilliti og getur þannig tekið til
heilla landshluta eða annarra stærri heilda”.
Nú liggur fyrir tillaga svæðisskipulagsnefndar að svæðisskipulagi fyrir Eyjafjarðarsvæðið sem tekur til
sveitarfélaganna sjö við Eyjafjörð þ. e. Fjallabyggðar, Dalvíkurbyggðar Hörgársveitar Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar,
Svalbarðsstrandarhrepps og Grýtubakkahrepps.
Samkvæmt 2. mgr. 23. gr. laganna skal nefndin kynna tillöguna “fyrir almenningi á almennum fundi eða á annan fullnægjandi
hátt” áður en hún er tekin til formlegrar afgreiðslu í nefndinni. Með vísan til þess er boðað til almennra kynningarfunda sem
hér segir:
Miðvikudaginn 9. jan 2013 kl. 20.00 á Akureyri fyrir íbúa Grýtubakkahrepps, Svalbarðsstrandarhrepps, Eyjafjarðarsveitar,
Akureyrarbæjar og Hörgársveitar.
Fundarstaður: Hótel KEA
Fimmtudaginn 10. jan. 2013 kl. 20.00 á Ólafsfirði fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar.
Fundarstaður: Tjarnarborg.
Að lokinni kynningu skal nefndin fjalla um og leggja fyrir viðkomandi sveitarstjórnir endanlega svæðisskipulagstillögu. Því
næst fær Skipulagsstofnun tillöguna til athugunar. Hafi stofnunin ekki gert athugasemdir við hana innan fjögurra vikna frá því að hún barst
henni skal auglýsa hana. Þá gefst öllum þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta tækifæri til að gera skriflegar athugasemdir við
tillöguna innan sex vikna frests.
Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar.