Kvikmyndasýningar í Fjallabyggð

Sendiráð Frakklands á Íslandi og Alliance francaise, í samstarfi við Akureyrarbæ og Fjallabyggð, skipuleggja tvær franskar kvikmyndahátíðir á Norðurlandi frá 15. til 19. mars 2014. Aðgangur er ókeypis á alla hátíðina! 
Sýningarnar í Fjallabyggð verða alls þrjár og allar laugardaginn 15. mars. Tvær sýningar verða í Bláa Húsinu á Rauðkutorgi og ein mynd í Menningarhúsinu Tjarnarborg.  Marc Bouteiller, sendiherra Frakklands á Íslandi mun verða viðstaddur sýningarnar og flytja stutt ávarp við upphaf fyrstu sýningar.

Sýningarnar verða sem hér segir: 
Bláa Húsið kl. 14:00 - Starbuck. (Gamanmynd frá 2011). Mynd sem hefur unnið til níu verðlauna og með 14 tilnefningar á hinum ýmsu kvikmyndahátíðum. Lengd: 109 mín. Talað mál: Franska. Tungumál þýðingar: Íslenska.
David er 42ja ára en hegðar sér ennþá eins og óábyrgur unglingur. Hann siglir í gegnum lífið með minnstu mögulegu áreynslu og er í flóknu sambandi við Valerie, unga lögreglukonu. Á sama tíma og hún tilkynnir að barn sé á leiðinni, kemur fortíð hans upp á yfirborðið. Tuttugu árum áður stundaði hann þá iðju að selja sæði sitt til sæðisbanka. Hann uppgötvar að sökum þessa á hann nú 533 börn og þar af hafa 142 þeirra höfðað mál saman til að komast að því hver líffræðilegur faðir þeirra er, en þau þekkja hann eingöngu undir nafninu Starbuck. David er í losti og þarf nú að ákveða hvernig eigi að tækla barnshafandi kærustuna, vini, fjölskyldu og ekki síst 142 afkvæmi sem vilja vita hver hann er.

Tjarnaborg kl. 16:00 - Les triplettes de Belleville (Þríburarnir frá Belleville) 
Gamanmynd - teiknimynd frá 2003. Tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna 2004. Mynd sem hefur hlotið fjölda viðurkenninga á mörgum kvikmyndahátíðum. Lengd myndar 78 mín. Án tals.
Ungum manni er rænt þegar hann keppir í Tour de France - hjólreiðakeppninni. Það vill svo til að hann er barnabarn frú Souza, sem leggur upp í mikla ævintýraför til að frelsa hann úr klóm ræningjanna. Með henni í för eru hundurinn Bruno og hinar öldruðu Belleville-systur, sem sjá fyrir sér endurhvarf til frægðar og frama fyrri tíma með söng sínum og dansi. 

Bláa Húsið kl. 17:30 La Princesse de Montpensier (Prinsessan af Montpensier)
Mynd frá 2010 sem hefur fengið fjölda tilnefninga á kvikmyndahátíðum og unnið til nokkurra verðlauna. Drama - rómantík. Lengd myndar 139 mín. Talað mál: Franska. Tungumál þýðingar: Enska.
Hún er með Lambert Wilson og Mélanie Thierry í aðalhlutverkum og er byggð á samnefndri ástarsögu eftir Madame de Lafayette, sem gerist á tímum trúarbragðastyrjalda í Frakklandi. 

Nánari upplýsingar um sýningarnar má nálgast hér og á heimasíðu hátíðarinnar www.fff.is