Komdu hugmynd í framkvæmd á 54 klukkustundum!

Atvinnu- og nýsköpunarhelgi á Akureyri
Atvinnu- og nýsköpunarhelgi á Akureyri
Atvinnu- og nýsköpunarhelgin fer fram á Akureyri helgina, 28. – 30. mars.  Viðburðurinn er haldinn er í þeim tilgangi að hjálpa einstaklingum að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. 
Að helginni standa Tækifæri, Háskólinn á Akureyri, Stefna og Akureyrarstofa. Eins styðja fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar við viðburðinn með margvíslegum hætti. 

Erlend fyrirmynd viðburðarins er StartupWeekend þar sem þátttakendur mæta með eða án hugmyndar, skipta sér niður í teymi og vinna frá föstudegi til sunnudags við að byggja upp viðskiptahugmyndir. Markmiðið er að klára frumgerð, eða komast sem næst því að klára frumgerð af vörunni eða þjónustunni sem unnið er að yfir helgina. Fjölmargir sérfróðir aðilar mæta yfir helgina og hjálpa þátttakendum við uppbyggingu hugmyndanna. 

1.000.000.- fyrir 1. sætið. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk þess verður fjórum hugmyndum veitt sérverðlaun.  

Allir geta tekið þátt; þeir sem hafa hugmynd að vöru eða þjónustu og einnig þeir sem vilja hjálpa hugmyndum annarra við að verða að veruleika. Hugmyndir þátttakenda geta verið margskonar og mislangt á veg komnar, þess vegna algjörlega ómótaðar hugmyndir að vöru eða þjónustu. HÉR má sjá myndskeið frá sambærilegri helgi sem fram fór á Akureyri. Þátttaka er ókeypis!

Hvað er innifalið:

· Hjálpsamir og reynslumiklir mentorar 
· Leiðsögn og kennsla á tól og tæki sem nýtast við stofnun fyrirtækja 
· Gagnlegir fyrirlestrar 
· Verðlaun fyrir bestu hugmyndina 
· Matur og drykkur allan tímann 

Auglýsing hér.
Skráning fer fram á www.ana.is