Knattspyrnuskóli KF sumarið 2018

Knattspyrnuskóli KF hefst mánudaginn 11. júní og lýkur fimmtudaginn 10. ágúst.

Knattspyrnuskólinn verður með breyttu sniði í ár þar sem lögð verður megináhersla á knattspyrnu en aðrar íþróttir og leikir verða einnig á námskeiðinu. Skólinn hefst kl. 13:00 alla virka daga vikunnar og lýkur kl. 15:45 (leiðbeinendur verða á staðnum til kl. 16:00 eða uns börn eru sótt).

Skólinn verður tvískiptur, knattspyrnuæfingar verða fyrri hluta dagsins frá kl. 13:00-14:30 en eftir það verða leikir og ýmislegt annað skemmtilegt. Lögð verður áhersla á fjölbreyttar og skemmtilegar knattspyrnuæfingar.

Skólinn hefst mánudaginn 11. júní og lýkur fimmtudaginn 10. ágúst. Knattspyrnuæfingar verða áfram í ágúst og verður það auglýst þegar nær dregur.

Umsjónarmaður íþrótta- og knattspyrnuskólans er Halldór Ingvar Guðmundsson, ásamt aðstoðarfólki. Skólinn er á Siglufirði á mánudögum og miðvikudögum en á Ólafsfirði á þriðjudögum og fimmtudögum. Föstudaga er kennt til skiptis milli bæjarkjarna, á Siglufirði 15. júní, 29. júní, 13. júlí, 27. júlí, og 10. ágúst og í Ólafsfirði 22. júní, 6. júlí, 20. júlí og 3. ágúst). Mæting er að Hóli á Siglufirði en við Vallarhúsið í Ólafsfirði, nema annað sé tekið fram. Tímatafla rútuferða má sjá neðar í fréttinni. Tekið skal fram að starfsmaður verður ávallt með í rútunni.

Börn fædd 2014 eru velkomin í skólann en sérstök athygli er vakin á því að börn í þessum árgangi geta eingöngu sótt skólann í sínum byggðarkjarna. Félaginu þykir ekki tímabært að svo ungir iðkendur fari í rútu á milli byggðarkjarnanna.

Facebooksíða skólans er: Íþrótta- og knattspyrnuskóli KF 2018

Upplýsingar um skipulag vikunnar munu verða settar inn á síðuna ásamt öðrum upplýsingum en skipulagið verður unnið út frá veðurspá. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með veðri og klæða börnin eftir því.

KF vill minna á að börnin hafi meðferðis hollt og gott nesti.

Verðskrá (2014 árgangurinn greiðir hálft gjald):

Allt sumarið (8 vikur): 30.000.-
Vikugjald: 5.000.-

Skráning er á kf@kfbolti.is þar sem koma þarf fram; hversu langan tíma barnið ætlar að sækja skólann, nafn, netfang og sími foreldra og nafn og kennitala barns. Einnig aðrar upplýsingar sem foreldrum telja að umsjónarmaður þurfi að vita um barnið. Félagið býður upp á að sækja leikskólabörn í leikskólana á meðan þeir eru starfandi. Allar frekari upplýsingar veitir Halldór Ingvar í síma 868-3392.

Rútuferðir

Siglufjörður

Mánudagur, miðvikudagur og föstudagur (15. júní, 29. júní, 13. júlí, 27. júlí og 10. ágúst)

12:45 Frá Vallarhúsinu á Ólafsfirði til Hóls

15:45 Frá Hóli til Vallarhússins á Ólafsfirði

Ólafsfjörður

Þriðjudagur, fimmtudagur og föstudagur (22. júní, 6. júlí, 20. júlí og 3. ágúst)

12:45 Frá Neðraskólahús á Siglufirði til Vallarhússins á Ólafsfirði

15:45 Frá Vallarhúsinu á Ólafsfirði til Neðraskólahúss á Siglufirði