KJÖRFUNDUR VEGNA FORSETAKJÖRS

Við kjör til forseta Íslands, er fram fer 25. júní 2016, er skipting í kjördeildir í sveitarfélaginu Fjallabyggð sem hér segir:

Í kjördeild I í Ráðhúsi Fjallabyggðar, 2. hæð Gránugötu 24 Siglufirði kjósa íbúar Siglufjarðar.
Kjörfundur hefst kl. 10:00.

Í kjördeild II í húsi Menntaskólans á Tröllaskaga að Ægisgötu 13 í Ólafsfirði kjósa íbúar Ólafsfjarðar.
Kjörfundur hefst kl. 10:00.

Kjörfundi má slíta átta klukkustundum eftir að hann hefst, hafi hálf klukkustund liðið frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00.

Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum sé þess óskað.

Sé kjósandi ekki fær um að kjósa á fyrirskipaðan hátt má hann velja sér fulltrúa til aðstoðar, enda geti kjósandi sjálfur með skýrum hætti tjáð vilja sinn óþvingað þar um við kjörstjórn, ella þarf vottorð réttindagæslumanns.

 

Yfirkjörstjórn Fjallabyggðar