Kjörfundur vegna Alþingiskosninga 2017

Þingsalur Alþingis
Þingsalur Alþingis

Kjördeildir  í bæjarfélaginu Fjallabyggð við Alþingiskosningarnar þann 28. október nk. verða tvær.

Kjördeild I - Ráðhúsi Siglufjarðar, Gránugötu 24, 2 hæð

Kjördeild II - Húsi Menntaskólans á Tröllaskaga, Ægisgötu 13 í Ólafsfirði.

Kjörskrá mun liggja frammi í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, alla virka daga frá kl. 9:30 til 15:00 f.o.m. 18. október 2017 til kjördags.

Þar sem viðmiðunardagur kjörskrár var 23. september sl. munu þeir einstaklingar sem sóttu um að vera teknir á kjörskrá á tímabilinu 23. september – 11. október ekki vera skráðir í prentútgáfu kjörskrárstofna né mun nafn þeirra koma upp við uppflettingu hér að neðan.  Þjóðskrá Íslands tilkynnir viðkomandi sveitarstjórn um það sérstaklega þegar bæta þarf kjósanda á kjörskrá samkvæmt þessu.

Upplýsingar um hvar þú ert á kjörskrá og hvaða kjördeild þú tilheyrir er einnig að finna á upplýsingaveitunni Island.is  á slóðinni

https://www.kosning.is/althingiskosningar-2017/kjorskra/