Keilir með kynningu á fjarnámi

Keilir verður með kynningu á fjarnámi Háskólabrúar á Siglufirði þriðjudaginn 3. nóvember næstkomandi. Kynningin fer fram í Ráðhúsi Fjallabyggðar að Gránugötu 24 kl. 17:00 - 18:00. Allir velkomnir. 

Fjarnám í Háskólabrú Keilis

Á Háskólabrú er boðið upp á nám fyrir einstaklinga sem ekki hafa lokið stúdentsprófi og er markmiðið með náminu er að veita nemendum góðan undirbúning fyrir krefjandi háskólanám. Að loknu námi uppfylla nemendur inntökuskilyrði í allt háskólanám á Íslandi og telst námið sambærilegt stúdentsprófi samkvæmt samningi Keilis og Háskóla Íslands. Háskólabrú Keilis er vinsælasta frumgreinanám á Íslandi og hafa nú um 1.300 einstaklingar lokið náminu. Af þeim hafa lang flestir haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis.

Háskólabrú á einu ári eða með vinnu á tveimur árum

Fjarnám Háskólabrúar Keilis tekur 2-3 annir og er umsóknarfrestur fyrir vorönn 2016 til 14. desember næstkomandi. Keilir býður einnig upp á aðfaranám að háskólanámi í fjarnámi til tveggja ára en um er að ræða frábæran möguleika fyrir þá sem að vilja taka Háskólabrú með vinnu eða vilja taka sér lengri tíma í námið. Háskólabrú með vinnu er kennt í fjarnámi og hefst námið föstudaginn 27. nóvember næstkomandi. 

Nánari upplýsingar um Háskólabrú Keilis á www.haskolabru.is