Kattahreinsun

Dýralæknir verður í Fjallabyggð sem hér segir:

  • Áhaldahúsinu Siglufirði fimmtudaginn 26. október kl:13:00-15:00 og fimmtudaginn 9. nóvember kl.16:00-18:00
  • Námuvegi 11 (Olís portið) Ólafsfirði fimmtudaginn 26. október kl:16:00-18:00 og fimmtudaginn 9. nóvember kl.13:00-15:00


Áríðandi að allir kettir séu hreinsaðir!

Innifalið í hreinsuninni er ormahreinsun. Eigendur fresskatta geta pantað geldingu hjá dýralækni en skylt er að gelda alla fressketti sex mánaða og eldri.
Þeir sem ekki gera grein fyrir köttum sínum, með því að mæta í hreinsun, eða framvísa vottorði
um að köttur þeirra sé hreinsaður, mega gera ráð fyrir að verða sviptir leyfi til kattahalds.

Dýraeftirlit Fjallabyggðar