Jólabærinn Ólafsfjörður

Jólabærinn Ólafsfjörður
Jólabærinn Ólafsfjörður

N.k. föstudagskvöld 9. desember verður jólakvöldið haldið í miðbæ Ólafsfjarðar. Það hefst kl. 19:30 og stendur fram eftir kvöldi. Þá verður miðbærinn lokaður fyrir umferð ökutækja og hluti Aðalgötunnar gerður að göngugötu.

Ýmis konar varningur verður til sölu í jólahúsunum, í Pálshúsi, Gallerí Uglu og smíðakompu Kristínar.

Kaffi Klara og Samkaup opin.

María og Jósef mæta á svæðið með jólalömbin og fleira veður í boði ef veður leyfir. Kápukórinn mun verða á röltinu og taka lagið og jólatónlist ómar um svæðið. Í fyrra voru óvæntar uppákomur á svæðinu og aldrei að vita hvað gerist núna.

Nýjung verður í ár en það er köku- og bökukeppni. Nú er bakað í öllum eldhúsum í Fjallabyggð fyrir jólin og dýrindis kökur verða til. Því er um að gera að koma með sýnishorn af bakstrinum og taka þátt í skemmtilegri keppni. Þeir sem ætla að vera með þurfa að koma með köku eða böku í Pálshús í síðasta lagi kl. 19 á föstudaginn.

Vel valdir dómarar á vegum Kvenfélagsins munu svo velja sigurvegara kvöldsins.

Verðlaun í boði Kaffi Klöru ásamt því að kakan/bakan verður í boði á Kaffi Klöru út desember.

Fylgist með á Facebook síðu

Jólabærinn Ólafsfjörður

 

Auglýsingu er að finna hér