Brúnar tunnur verða losaðar á miðvikudag, fimmtudag og föstudag í Fjallabyggð - Hugum að aðgengi að tunnum !

Vinsamlegast athugið að ekki verður hægt að losa brúnu tunnuna skv. sorphirðudagatali í dag þriðjudaginn 10. janúar vegna fannfergis og snjómoksturs. Stefnt er að því að losa brúnar tunnur á morgun miðvikudag og fimmtudag á Siglufirði og á föstudaginn í Ólafsfirði.

Þeim tilmælum er beint til húseigenda í Fjallabyggð að tryggja aðgengi að sorptunnum hjá sér, eins og mögulegt er, fyrir sorphirðudag svo hægt sé að hirða sorp frá heimilum. Ef aðgengi að sorptunn­um er slæmt og íbú­ar hafa ekki sinnt því að greiða götu starfs­fólks sorp­hirðunn­ar, verða tunnur ekki tæmdar.

Sorphirðudagatal 2023