Hönnunarsjóður auglýsir eftir umsóknum

Hönnunarsjóður auglýsir eftir umsóknum um ferðastyrki, þetta er fyrsta úthlutun af fjórum í ár. Frestur til þess að sækja um styrk rennur út á miðnætti þann 2. febrúar nk. Hver ferðastyrkur nemur 100.000 krónum.   Dagsetningar Hönnunarsjóðs fyrir 2018 eru:

1. úthlutun – Ferðastyrkir; Opnar 20. desember  | Lokar 2. febrúar | Úthlutun 15. febrúar

2. úthlutun - Almennir styrkir og ferðastyrkir; Opnar 1. mars | Lokar 11. apríl | Úthlutun 17. maí

3. úthlutun – Ferðastyrkir; Opnar 1. júní | Lokar 23. ágúst | Úthlutun 12. September

4. úthlutun – Almennir styrkir og ferðastyrkir; Opnar 3. september | Lokar 8. október | Úthlutun 8. nóvember

Nánar hér!

Rafrænt umsóknareyðublað er að finna á sjodur.honnunarmidstod.is