Hjóluðu í skólann

Hjólakapparnir. Mynd: af heimasíðu grunnskólans
Hjólakapparnir. Mynd: af heimasíðu grunnskólans

Það er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi að börn fari á hjóli í skólann en í gær tóku nokkrir nemendur úr 6. og 7. bekk sig til og hjóluðu í skólann. Nemendurnir eru allir búsettir á Siglufirði og fara að öllu jöfn með skólarútunni til Ólafsfjarðar en í gær ákváðu þau að fara á hjóli.  Ferðin tók um 55 mínútur og verður örugglega endurtekin að þeirra sögn.

Nemendurnir, sem fóru þessa 18 km leið, eru: Bjartmar Ari Aðalsteinsson, Halldóra Helga Sindradóttir, Hörður Ingi Kristjánsson, Júlíus Þorvaldsson og Tryggvi Þorvaldsson. Fylgdarmaður í ferðinni var Kristján Sturlaugsson.